Fara í efni

RAMV2RS05(AV) - Rafmagnsfræði 3

rafkerfi, rafteikningar, staðlar og reglugerðir

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: RAMV2ÞS05
Lögð er áhersla á að nemandinn fái þjálfun í reikningum á RLC – rásum varðandi riðstraumsviðnám, samviðnám, spennuföll og fasvik bæði í hliðtengdum og raðtengdum rásum. Nemandinn lærir um desebelútreikninga og notkun þeirra, helstu síur og hvernig hægt er að búa þær til úr RLC-rásum og framkvæma reikninga á þeim. Auk þess kynnist nemandinn umhverfisháðum viðnámum og táknum fyrir þau. Nemandinn framkvæmir einnig mælingar á síum og öðrum RLC – rásum. Nemandinn kynnist grunnatriðum einfasa og þrífasa rafkerfa.

Þekkingarviðmið

  • hvernig riðstraumsrásir með spólum og þéttum hegða sér við breytilega tíðni
  • virkni helstu sía
  • virkni umhverfisháðra viðnáma
  • desebel útreikningum og logarithmiskum kvarða
  • hvernig spennur, straumar og afl breytist við Y-tengingar og D- tengingar

Leikniviðmið

  • framkvæma alla helstu reikninga í rað- og hliðtengdum RLC – rásum
  • segja til um hvernig viðám og fasvik svona rása breytist með tíðni
  • tengingum og mælingar á RLC – rásum
  • útreikningi/hönnun á einföldum síum
  • tengja Y og D tengingar í þrífasa riðstraumskerfum

Hæfnisviðmið

  • tengja eftir teikningu og mæla í RLC – rásum bæði raðtengdum og hliðtengdum
  • hanna einfaldar síur með þéttum viðnámum og spólum og gera á þeim mælingar
  • gera mælingar á RLC – rásum yfir ákveðið tíðnisvið
  • setja niðurstöður fram í desebelum og í logaritmiskum kvarða
  • nýta sér hermiforrit til mælinga á rásum
  • setja niðurstöður mælinga fram í skýrsluformi
  • gera mælingar á þrífasatengingum, Y og D tengingum við jafnt og ójafnt álag
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?