Fara í efni

DANS2LN05 - Danska fyrir sjálfstæðan notanda 2

lestur, málnotkun, norðurlandamál, orðaforði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: DANS2OM05 eða sambærilegur áfangi
Markmið áfangans er að leggja grunn að því að nemandinn geti notað dönsku til samskipta við Dani og aðra Norðurlandabúa sem og lesið sér til gagns um ýmis efni á dönsku. Nemandinn æfir hlustun, tal, lestur og ritun. Læsi er þjálfað með því að lesa fjölbreytta texta. Þá þjálfast nemandinn í að hlusta á talað mál af ýmsum miðlum, tjá sig á dönsku, skriflega og munnlega. Í áfanganum er kynning á sænsku og norsku bæði munnlega og skriflega. Lögð er áhersla á að efla samvinnu milli nemenda. Einnig er lögð áhersla á að nemandinn beri ábyrgð á eigin námsframvindu og sé meðvitaður um mismunandi aðferðir til að tileinka sér tungumál. Nemandinn fær áfram þjálfun í að nota hjálpargögn og kennsluforrit í námi sínu. Kennsla fer fram á dönsku að miklu leyti.

Þekkingarviðmið

  • dönsku máli, danskri menningu og tengslum Íslands og Danmerkur
  • helstu einkennum danskrar tungu í framburði og rituðu máli
  • skyldleika norðurlandamálanna
  • helstu hjálpargögnum

Leikniviðmið

  • hlusta á danskt mál og skilja meginmál t.d. í fréttum og í leiknu efni
  • lesa sér til gagns og ánægju texta um margvísleg málefni
  • tjá sig skýrt í ræðu og riti um málefni sem hann hefur kynnt sér

Hæfnisviðmið

  • skilja talað mál í samtali og í fjölmiðlum og átta sig á inntaki þess
  • skilja inntak ritmáls um almenn og sérhæfð efni sem hann þekkir til eða hefur áhuga á
  • nýta nýjan orðaforða bæði munnlega og skriflega
  • nýta dönsku í samskiptum við Dani og að einhverju leyti í samskiptum við aðra Norðurlandabúa
  • auka meðvitund um eigin færni í tungumálinu og eigin leiðir til að tileinka sér málið
  • leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?