Fara í efni

SÆNS2NC05 - Sænska fyrir sjálfstæðan notanda II

menning, skilningur og málnotkun II

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Markmið áfangans er efla nemandann enn frekar í að nota sænsku i samskiptum við Norðmenn og aðra Norðurlandabúa sem og að leita sér efnis á sænsku í námi, leik og starfi. Allir fjórir færniþættirnir, lestur, ritun, hlustun og tal, eru þjálfaðir markvist auk þess sem nemenda er leiðbeint með notkun orðabóka og annarra hjálpartækja til tungumálanáms á netinu.

Þekkingarviðmið

  • sænsku tal- og skrifmáli
  • sænskri menningu, og tengslum tungumálanna
  • helstu málfræðiatriðum í sænsku og nýtt sér það bæði í rituðu og mæltu máli
  • notkun hjálpargagna s.s. orðabóka og leiðréttingarforrita á netinu

Leikniviðmið

  • lesa fjölbreytta texta sem tengjast efni áfangans
  • hlusta á sænsku og skilja að mestum hluta það sem fram fer
  • tjá sig um valin málefni og geti tekið þátt í samræðum
  • rita texta byggða á efni áfangans og gera orðalag texta að sínu
  • lesa sér til gagns og ánægju texta um margvísleg málefni
  • nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi

Hæfnisviðmið

  • skilja daglegt mál, svo sem samræður og fjölmiðlaefni, t.d. fréttir og sænska sjónvarpsþætti og nýta sér á mismunandi hátt
  • nýta grundvallaratriði sænskrar málfræði í ritun og tali
  • skrifa læsilega texta um ýmis málefni og nýta þann orðaforða sem áfanginn byggir á
  • nota viðeigandi orðalag í samskiptum
  • þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum
  • auka meðvitund um eigin færni í tungumálinu
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?