HREY1SU01(AV) - Sund
grunntækni, líkamsrækt, sund
			Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Forkröfur: engar
	Þrep: 1
Forkröfur: engar
		Verklegur áfangi þar sem nemendum er gerð grein fyrir þeim kostum sem sund sem líkamsrækt er. Farið er í grunntækni skriðsunds, baksunds og bringusunds. Vilji nemandi fá meiri þjálfun er hún veitt innan þess tímaramma sem kennslustund rúmar.	
			Þekkingarviðmið
- mikilvægi hreyfingar
 - sundíþróttinni
 - leiðum til að nýta sund sem líkams- og heilsurækt við daglegar athafnir
 - forvarnargildi líkamsræktar
 
Leikniviðmið
- synda
 - hreyfa sig sér til heilsubótar og ánægju
 
Hæfnisviðmið
- stunda hreyfingu án mikils tilkostnaðar
 - átta sig á mikilvægi hreyfingar fyrir andlega og líkamlega líðan einstaklingsins
 - nýta sér sundtæknina til að hreyfa sig markvisst