Fara í efni

STÝV1RS03 - Segulliðastýringar 1

rofar, snertur, spólur, tímaliðar

Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Í þessum áfanga er fjallað um grunnvirkni og notkun rofa og segulliða, rofa- og snertitækni kynnt. Fjallað er um virkni og notkun segulliða í stýrirásum og kraftrásum og tímaliða í stýrirásum. Farið er í undirstöðuatriði við gerð á einlínu- og fjöllínumyndum svo og tákn og staðla sem notaðir eru við gerð teikninga fyrir segulliðastýringar. Nemandinn fær þjálfun í að tengja, prófa og mæla og taka saman niðurstöður. Einnig er lögð áhersla á að nemandinn nýti sér mælitæki til að finna tengivillur og bilanir.

Þekkingarviðmið

  • einfaldri gerð rofa og segulliða
  • virkni og uppbyggingu segulliða
  • virkni og gerð tímaliða

Leikniviðmið

  • lesa einfaldar einlínu- og fjöllínuteikningar
  • hanna minni og einfaldar rofa- og segulliðastýringar

Hæfnisviðmið

  • tengja einfaldar stýrirásir
  • nýta mælitæki fyrir einfaldar stýrirásir
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?