Fara í efni

VMAT1IB06 - Verkleg matreiðsla

VMAT

Einingafjöldi: 6
Þrep: 1
Í áfanganum er farið í grunnmatreiðsluaðferðir, steikingu og suðu. Farið verður yfir notkun og umgengni á öllum helstu tækjum í eldhúsi. Nemandi být til öll helstu soð og fer yfir þá verkferla sem snúa að soðgerð ásamt grunnsósum. Í áfanganum er farið í gegnum innra eftirlit þar sem tekið er á móti vörum farið yfir nýtingu og rýrnun. Nemandanum er fylgt eftir í persónulegu hreinlæti og klæðarburði sem hentar hverju sinni. Einnig er lögð áhersla á frágang matvæla og matvælaöryggi. Í áfanganum er farið í grunnn aðferðafræði í eftirréttagerð. Farið er yfir beitingu hnífa og helstu skurði á grænmeti.

Þekkingarviðmið

  • almennum reglum við vörumótöku og frágang matvæla
  • öllum helstu tæki og handverkfæri í eldhúsi
  • helstu soðum og þeim verkferlum sem snúa að soðgerð
  • megin matreiðsluaðferðum með tilliti til hráefnis
  • persónulegu hreinlæti
  • umgengnisreglum Hótel- og matvælaskólans

Leikniviðmið

  • taka á móti vörum
  • ganga frá vörum eftir faglegum hefðum
  • undirbúa vinnuaðstöðu
  • laga helstu soð og grunnsósur
  • beita sértækum vinnubrögðum, verkfærum og tækjum
  • ganga frá eldhúsi samkvæmt faglegum og/eða stöðluðum hefðum/kerfum, HACCP og gátlistum

Hæfnisviðmið

  • skipuleggja, útfæra og framkvæma grunnþætti í soðgerð
  • skipuleggja vinnusvæði og framreiðsluferla með tilliti til þess hvert tilefnið er
  • þróa kunnáttu og leikni í grunnmatreiðsluaðferðum
  • samþætta notkun tækja, áhalda, hráefnis- og verkferla í eldhúsi
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?