Fara í efni

ÍSLE1LO04(AV) - Íslenska með áherslu á lestur og málskilning í víðu samhengi

Lestur og orðaforði

Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Forkröfur: Nemendur þurfa að ráða yfir einhverri/nokkurri lestrargetu
Unnið verður markvisst að því að þjálfa lestur í víðu samhengi, bæta lesskilning og skilning á orðtökum, myndmáli og líkamstjáningu. Jafnframt að efla málskilning, málnotkun, hlustun, tjáningu, samræður og ritun. Nemendur lesa fjölbreyttan texta og horfa á kvikmyndir og leikrit.

Þekkingarviðmið

  • mismunandi tjáningarmáta og túlkunaraðferðum
  • auknum orðaforða til daglegrar notkunar
  • mikilvægi þess að hafa góðan lesskilning, ekki bara á ritmáli

Leikniviðmið

  • átta sig á mismunandi túlkunaraðferðum
  • beita virkri hlustun og ná bæði aðal- og aukaatriðum
  • gagnrýna á uppbyggilegan hátt
  • koma skoðunum sínum á framfæri

Hæfnisviðmið

  • geta lesið og hlustað sér til gagns og ánægju
  • tekið þátt í samræðum og rökræðum
  • hlustað á og virt sjónarmið annarra
  • lagt mat á eigin frammistöðu (sjálfsmat)
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?