Fara í efni

HBFR1KF02 - Heilbrigðisfræði með áherslu á kynjafræði

Kynjafræði

Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Forkröfur: HBFR1ÉG02
Unnið verður með stöðu karla og kvenna í nútímasamfélagi og fjallað um gagnrýna hugsun og nemandinn æfður í að temja sér hana. Fjallað verður um jafnrétti í tengslum við mismun kynjanna og samskipti, sjálfsmynd og sjálfsvitund ásamt almennu heilbrigði.

Þekkingarviðmið

  • mismunandi stöðu karla og kvenna í nútímasamfélagi
  • mikilvægi jafnréttis hvarvetna í þjóðfélaginu
  • gagnrýninni hugsun og merkingu hennar fyrir einstaklinginn
  • mikilvægi jákvæðrar sjálfsmyndar
  • mikilvægi þess að öðlast færni í félagslegum samskiptum

Leikniviðmið

  • beita gagnrýninni hugsun, sérstaklega gagnvart hinum ýmsu miðlum
  • skoða jafnrétti í þjóðfélaginu
  • skilja hvað er rétt og rangt og geta tekið ákvarðanir í samræmi við það
  • tala um tilfinningar og reynslu í félagslegum samskiptum við bæði kynin

Hæfnisviðmið

  • horfa á mismunandi þjóðfélagshópa út frá jafnrétti og mannréttindum
  • hafa jákvætt viðhorf gagnvart mismunandi þjóðfélagshópum óháð stöðu þeirra
  • skynja eigin tilfinningar og þarfir og njóta sín í samvistum við aðra
  • taka upplýstar ákvarðanir
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?