Fara í efni

BVVE2VS05 - Verkstæðisfræði – samskipti og skipulag

samskipti, skipulag, verkstæðisfræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Farið yfir vinnuverndarmál, svo sem reglur um heilbrigði, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, ýmsar hættur í störfum og örugg vinnubrögð. Skoðuð áhöld og verkfæri sem notuð eru á ökutækjaverkstæðum. Skoðuð sérverkfæri og áhöld til sérgreindra verka. Farið yfir notkunarsvið og vinnuverndaratriði sem tengjast ýmsum verkstæðisbúnaði, einkum málmsuðutækjum, lyftitækjum, þrýstilofts- og rafknúnum tækjum og aflverkfærum. Farið yfir meðhöndlum skrúffestinga, þ.m.t. að gera við skrúfgang og bora úr slitna bolta. Fjallað um hættuleg efni og eitrunarhættu og bruna- og sprengihættu. Mikilvægi þess að íhuga hættur og þekkja viðbrögð við óhöppum. Hreinlæti og meðferð úrgangs og spilliefna. Áhersla á fagmennsku við alla þætti sem snerta starfið. Farið yfir samskipti milli starfsmanna á vinnustað og viðskiptavina. Framkoma við viðskiptavini: ráðlegging, útskýringar á viðgerðarþörf, fyrirspurnir og kvartanir. Hvernig getur viðgerðamaður viðhaldið þekkingu sinni og hæfni. Farið yfir skipulag vinnu, verkfæranotkun, upplýsingaöflun og aðferðir við bilanagreiningu. Notkun viðgerða- og handbóka. Mikilvægi sanngirni og heiðarleika í samskiptum. Nauðsyn skipulegra vinnubragða og heildaryfirsýnar við störf sín. Áfanginn er sameiginlegur bifreiðasmíði, bifvélavirkjun og bílamálun. Áherslur í kennslu skulu vera í samræmi við það.

Þekkingarviðmið

  • þeim almennu og sérstöku hættum sem fylgja störfum á ökutækjaverkstæðum og valdið geta slysum, sjúkdómum og skemmdum á verðmætum
  • persónulegum öryggisbúnaði og reglum um notkun
  • öryggis- og hlífðarbúnaði sem er á tækjum eða verkfærum
  • helstu almennu verkfærum og sérverkfærum sem notuð eru á ökutækjaverkstæðum, notkun þeirra og umhirðu
  • algengum skrúffestingum og lyklastærðum
  • nauðsyn góðra samskipta og trausts á milli þeirra sem tengjast starfi viðgerðamannsins
  • gildi tjónamatskerfa
  • kröfum um ástand og öryggi í reglugerð um gerð og búnað ökutækja

Leikniviðmið

  • gæta eigin öryggis og annarra á vinnustað
  • nota öryggis- og hlífðarbúnað sem er til staðar á verkstæðum, verkfærum og tækjum
  • nota helstu verkfæri og sérverkfæri sem notuð eru á ökutækjaverkstæðum
  • eiga samskipti við samstarfsmenn og viðskiptavini
  • gera við skrúfgang og bora úr slitna bolta
  • nota skoðunarhandbók Umferðarstofu
  • finna upplýsingar í viðgerða- og handbókum

Hæfnisviðmið

  • útskýra hugtakið fagmennska
  • lýsa reglum um hreinlæti, meðferð og förgun úrgangs og spilliefna
  • sýna hvernig nota á persónulegan öryggisbúnað
  • skilja samábyrgð allra á vinnustaðnum um örugg vinnubrögð
  • meta ástand almennra áhalda og verkfæra sem notuð eru á ökutækjaverkstæðum
  • lýsa meðferð, hirðu og beitingu almennra áhalda og verkfæra sem notuð eru á verkstæðum
  • lýsa notkun og meðferð verkstæðisbúnaðar: málmsuðutækja, lyftitækja, þrýstilofts- og rafknúinna tækja, aflverkfæra og ýmissa léttitækja
  • skipuleggja vinnu sína svo að árangur starfsins verði sem bestur
  • skrá vinnuskýrslu um verk sín
  • gera einfalda áætlun um viðgerð á bifreið
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?