Stuðningur við nema af erlendum uppruna
Verkmenntaskólinn á Akureyri býður nemendur af erlendum uppruna velkomna í skólann.
Þeir nemendur sem áhuga hafa á því að hefja nám við skólann þurfa að hafa náð hæfnistigi B1 í íslensku samkvæmt evrópska tungumálarammanum. Markmiðið er að tryggja að nemendur hafi nægilega íslenskukunnáttu til að geta tekið virkan þátt í námi og félagslífi skólans, þar sem kennsla og námsmat fara fram á íslensku samkvæmt lögum. Nemendur sem ekki hafa náð hæfnistigi B1 geta sótt um nám á Íslenskubrú við Menntaskólann á Akureyri, þar sem þeir fá markvissan stuðning í íslensku samhliða námi við hæfi. Þegar nemandi hefur náð B1-hæfni getur hann sótt um að hefja nám á þeim námsbrautum sem VMA býður uppá hverju sinni. Hægt er að sækja um skólavist í VMA í nóvember fyrir vorönn og í maí fyrir haustönn ár hvert.
Umsóknir
Grunnskólar gegna mikilvægu hlutverki í að leiðbeina nemendum og forráðamönnum þeirra varðandi þessi viðmið, þar sem þeir meta námsárangur og stöðu nemenda í íslensku áður en sótt er um framhaldsskólanám. Hafi nemandi ekki stundað nám í íslenskum grunnskóla er hægt að óska sérstaklega eftir prófi sem metur íslenskukunnáttu hans.
Sótt er um nám á www. innritun.is
Þjónusta
Nemendum af erlendum uppruna stendur almennt sú sama þjónusta til boða og öðrum nemendum skólans. Auk þess geta þeir tekið ÍSAN-áfanga (íslenska fyrir nemendur af erlendum uppruna) samhliða námi eftir því sem við á.
Námið við VMA
Allt nám í skólanum fer fram á íslensku. Nemendur innritast á almennar brautir.
Uppfært 26.05.2026 (SHM)