Fara í efni

ÍÞRG3FK03 - Frjálsar íþróttir og knattspyrna

Knattspyrna, frjálsar

Einingafjöldi: 3
Þrep: 3
Í áfanganum læra nemendur að kenna börnum undirstöðuatriði í frjálsum íþróttum og knattspyrnu. Lögð er áhersla á kennslu grunnfærni og leikfræði fyrir byrjendur. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallarfærni í greinunum. Farið er yfir helstu atriði í þjálffræði barna og mikilvægi þess að æfingar séu greindar í stuttar einingar, leikæfingar. Nemendur þjálfast í kennslu viðkomandi íþróttagreina og framkvæmd æfinga. Áfanginn er bóklegur og verklegur.

Þekkingarviðmið

  • kennslu í grunntækni íþróttana
  • skipulagi á þjálfun fyrir börn og unglinga
  • leikreglum
  • helstu þjálfunaraðferðum
  • fjölbreyttum tækni- og leikæfingum í þessum íþróttagreinum og mikilvægi þeirra

Leikniviðmið

  • leiðbeina börnum á mismundandi aldri í viðkomandi íþrótt
  • beita mismunandi þjálfunaraðferðum með ákveðin markmið að leiðarljósi svo sem þol, kraft og tækni
  • stunda frjálsar íþróttir og knattspyrnu
  • sýna og framkvæma ýmsar æfingar sem tengjast íþróttunum

Hæfnisviðmið

  • þjálfa ýmsa aldurshópa í frjálsum íþróttum og knattspyrnu
  • búa til tímaseðla, vikuáætlun og mánaðaráætlun með ákveðinn aldur í huga
  • kenna börnum rétta tækni
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?