STAÞ2SH20 - Starfsþjálfun húsasmiða 1
starfsþjálfun húsasmiða
Einingafjöldi: 20
Þrep: 2
Þrep: 2
Í þessum áfanga fer nemandinn í starfsþjálfun á vinnustað. Æskilegt er að hann taki alla starfsþjálfunina á sama vinnustaðnum og hjá sama iðnmeistaranum, en mögulegt er að skipta starfsþjálfuninni á fleiri vinnustaði og meistara. Nemandinn á að vinna við sem fjölbreyttasta verkþætti á vinnustað og skal öðlast þjálfun, leikni og hæfni í að vinna við verkþættina. Eftirfylgni með vinnu nemandans á tilgreindum verkþáttum er með ferilbók, sem nemandinn og iðnmeistari fylla inn í eftir framvindu. Æskilegt er að starfsþjálfun sé lokið áður en nemandinn hefur nám á lokaönn í skóla. Skólinn hefur eftirlit með starfsþjálfun nemandans og staðfestir hana með samþykkt sinni á ferilbókinni.
Þekkingarviðmið
- námsleiðum innan bygginga– og mannvirkjagreina
- öryggiskröfum á vinnustað
Leikniviðmið
- lesa og greina einfaldar teikningar, verklýsingar og önnur verkgögn
- beita algengustu áhöldum og tækjum innan atvinnugreinarinnar
- fara vel með tæki og tól og nýta vel það efni sem unnið er með
- gæta öryggis við vinnu og á vinnustað
- ganga fagmannlega frá í kennslustofu og á vinnustað og fara eftir leiðbeiningum kennara og verkstjóra
Hæfnisviðmið
- sinna störfum innan bygginga– og mannvirkjaiðnaðar
- nýta algengustu áhöld og tæki innan atvinnugreinarinnar
- nota helstu efni sem unnið er með í bygginga– og mannvirkjaiðnaði
- fylgja öryggisráðstöfunum á vinnustað
- tileinka sér mikilvægi heilsuverndar og umhverfisverndar í atvinnugreininni
- skilja mikilvægi góðra samskipta og samvinnu á vinnustað