Fara í efni

HGAL2FB04(AH) - Galagreiðsla

Galagreiðsla

Einingafjöldi: 4
Þrep: 2
Forkröfur: HÁRG2FB03DH
Nemandinn klippir dömuklippingu með hníf og þynnir. Í áfanganum er unnið að því að nemandinn nái sjálfstæðum, og faglegum tökum á mótun, ísetningu og úrgreiðslu hárs. Hann lærir gerð, litun og notkun lausra hártoppa, lenginga og vinnur með þá í greiðslum. Mótar, formar og litar hárið í ákveðin form. Ennfremur lærir hann gerð og notkun hárskrauts fyrir samkvæmis-/keppnisgreiðslur. Verkefnin eru unnin á æfingarhöfuð.

Þekkingarviðmið

  • ýmsum upprúllum og úrgreiðslum miðað við fyrirhugaða útkomu.
  • mismunandi stíl og stílbrigðum í hárgreiðslum.
  • áhöldum og efnum sem notuð eru við hárgreiðslur.
  • sígildum formum á samkvæmis-/keppnisgreiðslum.
  • mismunandi ísetningum hártoppa og hárskrauts.

Leikniviðmið

  • útfæra galagreiðslur á mismunandi vegu.
  • vinna og útbúa hártoppa og hárskraut.
  • greiða í mismunandi form.

Hæfnisviðmið

  • útfæra skapandi samkvæmisgreiðslur með hliðsjón af formi, áferð, uppbyggingu og samræmingu hárskrauts og toppa.
  • ná grunnhæfni í hönnun og útfærslu samkvæmisgreiðslna sem nýst gæti til frekari þjálfunar fyrir keppnir auk annarra þátta hárgreiðslu.
  • ganga vel um vinnusvæði, gæta öryggis og hreinlætis.
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?