UPPE3VR05 - Verkefna og rannsóknaráfangi
heimildavinna, rannsóknaraðferðir, rannsóknarferli, upplýsingaöflun
			Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: UPPE2MU05 eða sambærilegur áfangi
	Þrep: 3
Forkröfur: UPPE2MU05 eða sambærilegur áfangi
		Kynntar verða helstu rannsóknaraðferðir og rannsóknarferli sem viðhöfð eru í uppeldis- og menntunarfræðum. Nemendur eiga að öðlast færni í að vinna sjálfstætt undir leiðsögn kennara. Þeir vinna eitt stórt rannsóknarverkefni og hafa nokkuð frjálsar hendur um val á viðfangsefni. Viðfangsefnin verða að tengjast uppeldisaðstæðum barna og unglinga eða efnisþáttum sem hafa verið til umfjöllunar í fyrri uppeldisfræðiáföngum. Mikilvægt er að nemendur sýni frumkvæði í vali á viðfangsefnum. Nemendahópar geta haft samvinnu við verkefnaval, skipst á gögnum og borið saman aðstæður barna í ólíkum löndum, t.d. með notkun upplýsingatækni.	
			Þekkingarviðmið
- markmiðum og mikilvægi tímaramma
 - megindlegum og eigindlegum rannsóknaraðferðum
 - því sem hefur áhrif á val á rannsóknaraðferð
 - sértækum hugtökum og mikilvægi þeirra
 - siðferði í rannsóknum
 - réttri notkun heimilda, heimildaöflun og heimildaskráningu
 
Leikniviðmið
- nota fræðilegan texta á gagnrýninn hátt
 - beita viðeigandi rannsóknaraðferð á margvísleg viðfangsefni
 - skipuleggja vinnu sína
 - tengja saman rannsóknarniðurstöður og kenningar
 - miðla fræðilegu efni í ræðu og riti
 - sýna ekki svipbrigði, fordóma eða hlutdrægni í rannsóknarferlinu
 
Hæfnisviðmið
- sýna frumkvæði um val á viðfangsefni og afmarka það
 - leggja mat á hvaða rannsóknarðaðferðir henta best við margvíslegar aðstæður og á mismunandi rannsóknarefni
 - vinna á ábyrgan og traustan hátt úr þeim upplýsingum sem nemandinn aflar
 - vinna sjálfstætt og skipuleggja tíma sinn
 - setja fram þekkingu sína í ræðu og riti og rökstyðja
 - meta eigið vinnuframlag og frammistöðu sem og annarra á gagnrýninn hátt