Fara í efni

VÉLS3KS05 - Vélstjórn 5

kraftar og sveiflumyndun, uppbygging og slitfletir véla

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Nemandinn fær heildar yfirsýn yfir skipulag vélarúms, m.a. vélastaðsetningar og lagnafyrirkomulag. Nemandinn öðlast með hjálp fjölbreyttra gagna djúpa þekkingu á uppbyggingu einstakra vélarhluta og hlutverki þeirra. Hann geti metið ástand þeirra með mælingum og slitmörk út frá gögnum framleiðenda og öðrum upplýsingum. Í áfanganum er fjallað um ræsiloft og loft fyrir vinnuvélar og stýritæki, einstaka þætti loftkerfa, afgaskerfi, skólp- og sorakerfi, sjókerfi og ferskvatnskerfi til almennra nota. Fjallað er um legur, þ.m.t. hvítmálmslegur, uppbyggingu og gerð þeirra og notkunarsvið ásamt því að fjalla um krafta í bulluvélum, um sveiflumyndun í vélum og vélakerfum, um eigin tíðni véla, um gerð og hlutverk dempara og eftirlit með þeim, um byggingu meðalhraðgengra og hraðgengra dísilvéla og ýmis rekstraratriði varðandi svartolíubrennslu og gangtruflanir. Í verklega þætti áfangans er áhersla lögð á keyrslu vélarrúms ásamt ritmyndatöku og þjálfuð viðbrögð við gangtruflunum. Skilvindur, viðhald og rekstur. Þrýstivökvakerfi og vökvagíra svo og Pt-eldsneytiskerfi og afgasvaka. Nemandinn skal gera áætlun um viðgerðir og leggja mat á ástand búnaðarins að viðgerð lokinni.

Þekkingarviðmið

  • uppbyggingu ræsiloftskerfis og alla hluta þess, þar á meðal tveggja þrepa loftþjöppu, ræsilofthylki með lokum og annan búnað sem tilheyrir slíku kerfi
  • mismunandi loftræsibúnaði dísilvéla
  • uppbyggingu afgaskerfis
  • helstu gerðum lega, uppbyggingu þeirra og notkunarsviði
  • innri sveiflum í vélum og vélakerfum, um eigintíðni véla og hvernig megi draga úr óæskilegum sveiflum
  • hlutverki dempara, helstu gerðum þeirra og eftirliti með ástandi þeirra
  • uppbyggingu loftræstikerfis
  • mismunandi gerð lega til mismunandi nota
  • aðferðum varðandi þurrkun lofts fyrir stýrikerfi og loftræstikerfi fyrir vélarrúm og lestar
  • mismunandi gerðum afgaskatla og öryggisbúnaðar sem tengist þeim
  • mismunandi tegundum eldsneytisolíu og smurolíu, eiginleikum þeirra og annmörkum

Leikniviðmið

  • gera tillögur um val á vélbúnaði og íhlutum sem best hentar við tilteknar aðstæður, t.d. með tilliti til álags, snúningshraða og endingar
  • gera tillögur um viðhald og leggja mat á árangur af viðgerðum
  • rekja og lýsa fráveitukerfum í skipum, þ.e. skólpkerfum og lögnum, og kerfum til söfnunar, geymslu og losunar á sora og austri

Hæfnisviðmið

  • stjórna vélbúnaði og vélakerfum í stærri skipum
  • útskýra grunnbyggingu nútíma meðalgengra dísilvéla
  • útskýra fyrirkomulagsteikningar í vélarrúmi og rörateikningar mismunandi kerfa
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?