Fara í efni

ÍSLE1BR04 - Íslenska með áherslu á bókmenntir

bókmenntir, málnotkun, ritun

Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Unnið verður með alla þætti íslenskunnar þar sem bókmenntir verða hafðar að leiðarljósi. Nemandinn fær tækifæri til að læra í gegnum bókmenntir og vinna með þær á fjölbreyttan hátt. Áhersla er á að nemandinn bæti orðaforða sinn í ræðu og/eða riti, efli sjálfstraust sitt og trú á eigin málfræðinotkun í máli og/eða riti. Einnig að nemandinn auki les- og/eða hlustunarskilning sinn og æfist í að skilgreina hugtök sem koma fram í texta. Notast verður við umræður, ígrundun og þjálfun nemanda í að tjá skoðanir sínar í gegnum uppbyggilegar samræður. Notast verður við aldursmiðaðar bókmenntir og fjölbreytt verkefni. Megin áhersla verður á að nemandinn viðhaldi og byggi ofan á þann grunn sem hann býr nú þegar að.

Þekkingarviðmið

  • aldursmiðuðum bókmenntum
  • uppbyggingu bóka
  • mikilvægi lestrar/hlustunar sem nýtist í daglegu lífi
  • innihaldi og söguþræði bókmennta

Leikniviðmið

  • nota og/eða tileinka sér nýjan orðaforða
  • lesa og/eða hlusta á mismunandi texta sér til gagns og gleði
  • tjá skoðanir sínar

Hæfnisviðmið

  • nýta sér bókmenntir í daglegu lífi til gagns og/eða gleði í hvaða formi sem er, t.d. ritaðar bækur, hljóðbækur og rafbækur
  • spyrja spurninga og hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
  • láta skoðanir sínar í ljós
  • auka sjálfstraust í ræðu og/eða riti
  • greina innihald og söguþráð
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?