Fara í efni

ÍSLE1LM04 - Íslenska með áherslu á lýðræði og mannréttindi

Læsi, lýðræði, mannréttindi og bókmenntir

Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Unnið verður með alla þætti íslenskunnar og grunnþátturinn lýðræði og mannréttindi hafður að leiðarljósi. Notaðar verða aldursmiðaðar bókmenntir sem gefa fjölbreytta sýn á aðstæður og umhverfi ungs fólks. Fjölbreytt verkefni verða nýtt í kennslunni. Nemandinn verður hvattur til að velta fyrir sér hugtakinu lýðræði og taka afstöðu til siðferðilegra álitamála, s.s. mannréttinda, samábyrgðar, meðvitundar og virkni borgara við að móta samfélag sitt og hafa áhrif. Megin áhersla verður á að nemandinn viðhaldi og byggi ofan á þann grunn sem hann býr nú þegar að.

Þekkingarviðmið

  • hugtökunum lýðræði og mannréttindi
  • fjölbreytileika lýðræðis og mannréttinda
  • samhenginu á milli réttinda og skyldna
  • að í lýðræðisríki eiga borgarnir að búa við mannréttindi og komast að samkomulagi
  • mikilvægi þess að eiga valmöguleika

Leikniviðmið

  • átta sig á fjölbreytileika samfélagsins og mismunandi menningarheimum
  • beita gagnrýninni hugsun
  • virða skoðanir annarra
  • taka þátt í umræðum

Hæfnisviðmið

  • skilja þá hugsun sem felst í hugtökunum lýðræði og mannréttindi
  • spyrja spurninga og hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
  • átta sig á tengingu á milli réttinda og skyldna
  • láta skoðanir sínar í ljós
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?