Fara í efni

RAMV2ÞS05 - Rafmagnsfræði 2

riðstraumur, spólur, þéttar

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: RAMV1HL05
Farið er í hvernig riðstraumur verður til og hegðar sér auk helstu spennu/straum gilda í riðstraum. Farið í helstu hugtök og lögmál rafmagsfræði riðstraums. Lögð áhersla á að nemandinn nýti sér þessi lögmál til lausna á verkefnum bæði í reikningi og með mælingum. Farið er í helstu teiknitákn í riðstraumsrásum með þéttum, spólum og viðnámum. Nemandinn lærir hvað fasvik er og fær þjálfun í að reikna það, mæla og leiðrétta. Kennd er notkun helstu mælitækja í riðstraumsrásum s.s. sveiflsjá og tíðnigjafa.

Þekkingarviðmið

  • helstu lögmálum í riðstraumsrásum svo sem spanlögmáli Faradeys og Lenz lögmáli
  • helstu gildum sem notuð eru svo sem toppgildi, virkt gildi, meðalgildi
  • teiknitáknum í span og rýmdar rásum
  • helstu reikningum í riðstraumsrásum
  • fasviki

Leikniviðmið

  • reikna einfaldar riðstraumsrásir með rýmd og spani
  • nota helstu mælitæki fyrir riðstraumsrásir
  • teikna og tengja einfaldar riðstraumsrásir

Hæfnisviðmið

  • tengja upp einfaldar riðstraumsrásir eftir teikningum og framkvæma á þeim mælingar
  • reikna einfaldar riðstraumsrásir og sannprófa niðurstöður með lögmálum og/eða mælingum
  • tengja og framkvæma mælingar á riðstraumsrásum
  • skrifa skýrslu um mælingar og niðurstöður þeirra
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?