Fara í efni

ÖRSK1FS01 - Öryggisfræði

fyrsta hjálp, skyndihjálparkeðja, áverkaeinkenni

Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Áfanginn fjallar um skyndihjálp og fyrstu viðbrögð við áföllum og slysum. Nemandinn fær fræðslu um helstu áverkaeinkenni og rétt viðbrögð við þeim ásamt þjálfun í notkun fjögurra skrefa skyndihjálparkeðjunnar. Lögð er áhersla á að nemandinn sé virkur þátttakandi í náminu og hafi sjálfstraust til að takast á við fjölbreytt verkefni.

Þekkingarviðmið

  • fjórum skrefum skyndihjálparkeðjunnar sem eru að; tryggja öryggi á vettvangi, meta ástand slasaðra eða sjúkra, sækja hjálp og veita skyndihjálp
  • helstu áverkaeinkennum og réttum viðbrögðum við þeim
  • helstu einkennum bráðra veikinda og réttum viðbrögðum við þeim

Leikniviðmið

  • veita sálræna skyndihjálp
  • beita endurlífgun og kunna á sjálfvirk stuðtæki í neyðartilfellum
  • leggja sjúkling í læsta hliðarlegu og tryggja þannig öryggi hans
  • binda um sár og flytja sjúkling til við yfirvofandi hættu

Hæfnisviðmið

  • sýna rétt viðbrögð við slysum
  • meta ástand sjúkra og slasaðra
  • nýta skyndihjálp við slys og bráð veikindi
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?