Fara í efni

STAF3ÞJ08(AV) - Starfsþjálfun sjúkraliðanema

þjálfun á vinnsustað

Einingafjöldi: 8
Þrep: 3
Í áfanganum vinnur nemandinn undir handleiðslu sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga á heilbrigðisstofnun. Nemandinn öðlast hæfni og sjálfstæði í störfum sjúkraliða og við lok námsins skal nemandinn búa yfir almennri og sérhæfðri þekkingu, leikni og hæfni til þess að vinna hjúkrunar- og umönnunarstörf á faglegan hátt. Heimilt er að skipta starfsþjálfun niður í tvö til þrjú tímabil, en þjálfunin skal þó vera samfelld á hverju tímabili og lágmarksvinnuhlutfall ekki fara undir 60%. Nemandinn skal áður en hann fer í starfsþjálfun fá samþykki skóla fyrir námsstaðnum og skrifa undir námssamning ásamt fulltrúa skóla og ábyrgðaraðila á námsstað. Starfsþjálfunin er í 5 vikur, miðað við 40 stunda vinnuviku. Nemandinn skal alfarið fylgja þeim reglum sem viðkomandi heilbrigðisstofnun setur sínu starfsfólki.

Þekkingarviðmið

  • faglegum grunni hjúkrunarstarfa
  • mikilvægi samskipta og samvinnu í störfum sjúkraliða
  • vinnuumhverfi og starfssviði sjúkraliða
  • siðareglum sjúkraliða
  • lögum og reglugerðum sem tengjast störfum sjúkraliða

Leikniviðmið

  • beita faglegum vinnubrögðum í sjúkraliðastarfinu
  • taka þátt í þverfaglegu samstarfi
  • starfa eftir siðareglum, sýna siðferðisvitund, fordómaleysi, umburðarlyndi og víðsýni í störfum sínum
  • vinna eftir gæðaviðmiðum heilbrigðisstofnana
  • beita hjúkrunarmeðferðum samkvæmt hjúkrunaráætlun hverju sinni
  • beita innsæi, gagnrýninni og skapandi hugsun við lausn hjúkrunarviðfangsefna

Hæfnisviðmið

  • yfirfæra og samþætta fræðilega þekkingu að sjúkraliðastarfinu
  • vinna sjálfstætt og bregðast við margvíslegum aðstæðum í sjúkraliðastarfinu
  • rökstyðja og ígrunda þær hjúkrunarmeðferðir sem hann framkvæmir samkvæmt hjúkrunaráætlun hverju sinni
  • sýna hæfni í samskiptum við ólíka einstaklinga með ólíkar þarfir
  • tileinka sér nýjungar og þróa sig í starfi
  • nýta samskiptahæfni við margvíslegar aðstæður
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?