BURF4VD04(AV) - Burðarþolsfræði
Burðarþolsfræði
			Einingafjöldi: 4
Þrep: 4
Forkröfur: SMÍÐ2NH05 EÐLI3AV05 STÆF2VH05
	Þrep: 4
Forkröfur: SMÍÐ2NH05 EÐLI3AV05 STÆF2VH05
		Nám í þessum áfanga á að veita nemendum undirstöðuþekkingu í burðarþolsfræðum að því marki að þeir geti notað burðarþolsútreikninga til að ákvarða stærð og styrk ýmissa vélarhluta og lagt mat á efnisgerð út frá þeim.	
			Þekkingarviðmið
- eiginleikum helstu málma við tog- eða þrýstiálag.
 - grundvallaratriðum jafnvægisfræðinnar.
 - fjöðrun í efnum og lögmáli Hooks.
 - hvað átt er við með togspennu, þrýstispennu og skurðarspennu.
 - aðferðum við að reikna út spennur í bitum og vélahlutum.
 - skurðkröftum og bognunarvægislínuriti fyrir burðarálag á öxla og bita.
 - flatar- og viðnámsvægi öxla og bita.
 - Euler-reiknireglunni og beitingu hennar við útreikninga á álagi á súlur.
 - útreikningum á hámarksspennum samkvæmt von Mises.
 
Leikniviðmið
- reikna út togspennur, þrýstispennur og skurðarspennur í þversniðum.
 - reikna út skurðkrafta og bognunarvægi fyrir öxla og bita.
 - reikna út flatar- og viðnámsvægi fyrir ýmis þversnið.
 - reikna út spennur í öxlum og bitum.
 - reikna út styrk í súlum m.a. á grundvelli Euler-reiknireglunnar.
 
Hæfnisviðmið
- reikna burðarþol til að ákvarða stærð og styrk ýmissa öxla, bita og vélarhluta.
 - velja málma og efnismagn sem standast kröfur um styrk og hámarka efnisnýtni.
 - vinna sjálfstætt og leggja gagnrýnið mat á útreikninga.