Fara í efni

SJÓN1TF05(AV) - Sjónlistir 1 - Teikning

aðferðir, form, teikning, áhöld

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Nemandinn lærir undirstöðuatriði í teikningu. Með margskonar aðferðum þjálfar hann sig í að yfirfæra þrívíða fyrirmynd á tvívíðan teikniflöt og teiknar samkvæmt ímyndum sínum. Nemandinn beitir bæði rannsóknarteikningu og hraðteikningu. Hann teiknar grunnform og umhverfi innan húss og utan og lærir mæliaðferðir og aðferðir til að skapa dýpt. Hann teiknar einnig mannslíkama, kynnist hlutföllum hans, jafnvægi og hreyfingu og mæliaðferðum. Hann fær innsýn í heim vísindamanna, listamanna og hönnuða í tengslum við verkefnavinnu. Nemandinn ígrundar stöðugt verk sín í samvinnu við kennara og aðra nemendur.

Þekkingarviðmið

  • • grunnformum í umhverfi og mannslíkama
  • • grundvallaratriðum í túlkun dýptar á tvívíðum teiknifleti t.d. með fjarvíddarreglum

Leikniviðmið

  • tengja sjónræna rannsókn á umhverfi við hreyfingu handar og yfirfæra það sem hann sér á tvívíðan teikniflöt
  • fá fram dýpt með fjarvíddarreglum og fleiri aðferðum
  • meta stærðir, stefnu, hlutföll, jafnvægi og afstöðu með hjálparaðferðum
  • teikna út frá ímyndunarafli
  • beita margvíslegum efnum og aðferðum í teikningu

Hæfnisviðmið

  • rannsaka umhverfi sitt og ímyndir í gegnum teikningu með margvíslegum efnum og aðferðum á sjálfstæðan hátt
  • setja fram eigin hugmyndir með teikningu og þróa eigin teiknistíl
  • nýta teikningar listamanna, hönnuða og vísindamanna sem innblástur fyrir eigin teikningar
  • ígrunda og ræða um verk sín og vinnuferli í samvinnu við aðra nemendur og kennara og setja eign verk fram til kynningar á skýran hátt
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?