Fara í efni

VINN3LS08(AV) - Verknám á sjúkrahúsi

Lyflækningahjúkrun, skurðlækningahjúkrun

Einingafjöldi: 8
Þrep: 3
Forkröfur: HJÚK3TV05
Vinnustaðanámið fer fram á almennri deild á sjúkrahúsi s.s. skurð- og lyflækningadeildum. Nemandinn vinnur jafnframt verkefni tengt viðfangsefnum vinnustaðanámsins. Kennari áfangans, sjúkraliði/leiðbeinandi og deildarstjóri bera sameiginlega ábyrgð á verklegu námi sjúkraliðanema. Nemandinn fylgir leiðbeinanda við öll almenn störf sjúkraliða og öðlast þjálfun í þeim. Í upphafi tímabils setur nemandinn sér persónuleg og fagleg markmið um vinnustaðanámið. Á meðan á vinnustaðanámi stendur skal nemandinn fylla út gátlista og ferilbók um unna verkþætti.

Þekkingarviðmið

  • athöfnum daglegs lífs (ADL) við umönnun sjúklinga á sjúkrahúsum
  • viðurkenndum reglum um smitgát og sýkingavarnir
  • faglegri umhyggju og samskiptum í hjúkrunarstörfum
  • mikilvægi eftirlits og mats á líkamlegu og andlegu ástandi sjúklings
  • mælitækjum og öðrum hjúkrunargögnum sem notuð eru í hjúkrunarstörfum
  • mikilvægi þagnarskyldu
  • réttindum sjúklinga samkvæmt lögum
  • undirbúningi sjúklings fyrir og eftir aðgerðir og rannsóknir
  • mikilvægi forgangsröðunar í hjúkrunarstörfum
  • sýnatökum og meðferð sýna

Leikniviðmið

  • vinna eftir reglum um smitgát og sýnatökur
  • taka þátt í að mæla og skrá algengar athuganir hjá sjúklingum
  • nota helstu hjálpartæki og hjúkrunargögn á viðeigandi hátt
  • taka þátt í þverfaglegri samvinnu heilbrigðisstétta
  • forgangsraða eigin störfum
  • vinna samkvæmt hjúkrunarferli
  • hjúkra sjúklingi fyrir og eftir aðgerðir og rannsóknir

Hæfnisviðmið

  • velja viðeigandi hjúkrunarmeðferð hverju sinni og rökstyðja hana
  • virða og útskýra mikilvægi þagnarskyldu og trúnaðar við sjúkling
  • sýna hæfni í samskiptum við sjúklinga og samstarfsfólk
  • sýna faglega umhyggju í hjúkrun
  • meta sjálfsbjargargetu og þarfir sjúklingsins í athöfnum daglegs lífs
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?