Fara í efni

ENSK2LS05 - Lestur til skilnings

lestur, málfræði, orðaforði, skilningur

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Að hafa lokið grunnskóla með fullnægjandi hætti að mati skólans.
Í áfanganum er lögð áhersla á tjáningu, lestur texta, ritun og undirstöðuatriði enskrar málfræði með það fyrir augum að byggja upp virkan og hagnýtan orðaforða. Einnig er hugtakið menningarlæsi kynnt með umburðarlyndi gagnvart öðrum menningarheimum í huga. Lesnir verða valdir rauntextar, auk þess sem nemandinn les valin skáldverk. Skriflegi þátturinn er þjálfaður með fjölbreyttum æfingum með sérstaka áherslu á formlega ritgerðarsmíð þar sem unnið er með upplýsingar sem nemendur afla sér, t.d. á Internetinu. Nemandinn á að tileinka sér munnlega tjáningu á ensku og er honum leiðbeint í kennslustundum þar sem öll tjáskipti fara fram á ensku.

Þekkingarviðmið

  • helstu einkennum enskrar menningar og tungu
  • menningu og tungu í enskumælandi samfélögum
  • almennum málfræðireglum
  • sérkennum ritmáls og talmáls

Leikniviðmið

  • beita almennum málfræðireglum í ræðu og riti
  • nota orðabók og viðeigandi hjálpargögn
  • tjá kunnáttu sína munnlega og skriflega
  • lesa og greina bókmenntatexta

Hæfnisviðmið

  • tjá sig í ræðu og riti á ensku
  • verða sjálfbjarga í upplýsingaöflun á ensku
  • geta aflað sér upplýsinga um ensk málsamfélög
  • lesa sér til gagns og gamans
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?