Fara í efni

BMRA4RS03 - Raftækni stærri ökutækja

raftækni, stærri ökutæki

Einingafjöldi: 3
Þrep: 4
Farið yfir rafbúnað og raflagnir stærri ökutækja; strætisvagna, hópbifreiða, hjólhýsa og húsbíla. Einnig farið yfir rafbúnað og raflagnir vöruflutningabifreiða, dráttarbifreiða og ýmissa vinnuökutækja. Netkerfi og samskiptabúnaður sem stjórnar raftækjum skoðaður. Farið yfir hljóð- og merkjakerfisbúnað til þæginda og/eða upplýsinga fyrir farþega í strætisvögnum og hópbifreiðum.

Þekkingarviðmið

  • rafhreyfibúnaði fyrir íhluti; lok, hurðir, speldi og lokur í loftræsti- og hitakerfum
  • raflögnum; efni, tengingum og umbúnaði raflagna í stærri ökutækjum innilýsingu í vistrými stærri ökutækja
  • ljósakerfum ökutækja
  • netkerfum stjórnboða í ökutækjum
  • gerð og virkni hljóð- og merkjakerfisbúnaðar í strætisvögnum og hópbifreiðum

Leikniviðmið

  • finna upplýsingar í viðgerðaleiðbeiningum sem nauðsynlegar eru við greiningu og viðgerð á raf- og samskiptakerfum stærri ökutækja
  • leiðbeina öðrum viðgerðamönnum um viðgerðir raf- og samskiptabúnaðar

Hæfnisviðmið

  • greina bilanir í ýmsum raf- og samskiptakerfum stærri ökutækja
  • gera við eða skipta um einingar eða íhluti í raf- og samskiptakerfum stærri ökutækja
  • leiðbeina ökumönnum stærri ökutækja um notkun ýmiss raf- og samskiptabúnaðar og viðbrögð við gangtruflunum eða bilunum
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?