STAR1VS06(AV) - Starfsnám með áherslu á vinnustaðanám
Vinnustaðanám
			Einingafjöldi: 6
Þrep: 1
Forkröfur: Að hafa lokið sem svarar a.m.k. fjögurra anna námi
	Þrep: 1
Forkröfur: Að hafa lokið sem svarar a.m.k. fjögurra anna námi
		Í þessum áfanga fær nemandinn tækifæri til að kynna sér mismunandi vinnustaði. Við val á vinnustöðum verður tekið mið af óskum nemandans. Starfsnámið verður skipulagt í samráði við vinnuveitendur og hefur kennari eða annar starfsmaður skólans umsjón með starfsnáminu. Nemandinn vinnur eftir vinnulistum sem taka mið af aðstæðum hverju sinni. 	
			Þekkingarviðmið
- fjölbreyttum vinnustöðum
 - undirstöðuþáttum þess vinnustaðar sem hann kýs að starfa á í sínu starfsnámi
 - þeim áhöldum, tækjum og tólum sem ætlast er til að viðkomandi nýti sér eða meðhöndli úti á vettvangi
 - hættum sem geta verið í starfsumhverfinu
 - atvinnutækifærum og fyrirtækjum í nærsamfélaginu
 - þeim atriðum sem taka ber tillit til við starfsval
 - tilgangi starfa og mikilvægi þeirra í tengslum við önnur störf
 - eigin styrkleikum og mikilvægi góðra samskipta
 
Leikniviðmið
- velja sér vinnustað út frá raunhæfum markmiðum
 - vinna sjálfstætt eða undir leiðsögn
 - fylgja fyrirmælum
 - fylgja hreinlætisreglum á vinnustað
 - fylgja samskiptareglum á vinnustað
 - koma sér til og frá vinnu á réttum tímum
 - bera ábyrgð á sjálfum sér og eigin gjörðum
 - taka þátt í samræðum, bera virðingu fyrir skoðunum annarra og sýna umburðarlyndi
 - meta hættur í vinnuumhverfi
 
Hæfnisviðmið
- taka þátt í atvinnulífinu
 - biðja um aðstoð ef þess þarf
 - tilheyra starfsmannahópi
 - vera ábyrgur starfsmaður
 - vera hæfur til samvinnu
 - nýta sér hlífðarbúnað og hjálpartæki á vinnustað og forðast hættur
 - þekkja viðeigandi hegðun í vettvangsheimsóknum og/eða í starfsnámi