Fara í efni

VSMV3ÖF03 - Smáspennuvirki 3

fjarskiptakerfi, öryggiskerfi

Einingafjöldi: 3
Þrep: 3
Forkröfur: VSMV3NT03
Í þessum áfanga er lögð áhersla á meðalstór boðskiptakerfi (loftnets-, síma- og tölvulagnakerfi). Einnig fjallar hann um uppbyggingu, uppsetningu og viðhald einfaldra viðvörunarkerfa, svo sem brunaviðvörunarkerfa og þjófavarnarkerfa fyrir heimili og smærri fyrirtæki. Einnig er farið yfir reglur og reglugerðir sem um þessa hluti gilda. Farið er í uppbyggingu og eiginleika helstu dreifikerfa, s.s. dreifingu sjónvarps á UHF-rásum, örbylgju, ljósleiðara, og gegnum gervihnetti. Farið verður í tæknikröfur sem gerðar eru til viðtöku og uppsetningar á framangreindum kerfum. Nýjungar í dreifingu í gegnum þá miðla sem eru í boði og farið yfir tækni við dreifingu og miðlun efnis til heimila og stofnana. Eiginleikar ljósleiðarans eru kynntir fyrir nemendum og farið verður í þær kröfur sem gerðar eru til ljósleiðaralagna. Fjallað er um reglur um neyðarlýsingar, uppsetningar og gerðir. Fjallað er um íhluti, eiginleika, hlutverk og notkunarsvið neyðarlýsinga.

Þekkingarviðmið

  • helstu íhlutum loftnetskerfa og eiginleika þeirra
  • mismunandi aðferðum við teikningu og útfærslu, ásamt útreikningum á minni loftnetskerfum
  • uppsetningu boðskiptalagna og ljósleiðaralagna
  • uppsetningu og virkni IP myndavéla
  • reglum sem gilda um sjálvirk brunaviðvörunarkerfi
  • reglum og aðferðum sem gilda um uppsetningu eftirlits og viðvörunarkerfa
  • helstu reglum og stöðlum um neyðarlýsingar

Leikniviðmið

  • teikna og hanna loftnetskerfi og mæla minni fjarskiptakerfi
  • teikna og velja búnað í brunaviðvörunarkerfi
  • lesa úr teikningum af brunaviðvörunarkerfunum
  • velja búnað og strengi í eftilits og viðvörunarkerfin
  • velja neyðarlýsingarbúnað eftir reglum sem um hann gilda

Hæfnisviðmið

  • hanna og velja búnað í minni loftnetskerfi
  • lesa teikningar og verklýsingar fyrir loftnetskerfi
  • velja búnað í brunaviðvörunarkerfi
  • velja efni og strengi í boðskiptalagnir (ljósleiðara og cat5)
  • hanna minni brunaviðvörunarkerfi, gera úttektarskýrslur og beita reglum um sjálfvirk brunakerfi
  • beita reglum og stöðlum um neyðarlýsingar
  • færa inn breytingar á uppdrætti,sem gerðar eru á kerfunum
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?