RÖKR3IS04(AV) - Rökrásir 1
iðntölvur, rökhugtök, stafræn tækni
			Einingafjöldi: 4
Þrep: 3
Forkröfur: RAMV2MJ04
	Þrep: 3
Forkröfur: RAMV2MJ04
		Nemandinn öðlast undirstöðuþekkingu í gerð rökrása og fær þjálfun í hönnun og greiningu á einföldum rökrásum, tengingum og forritun þeirra. Hann þjálfast í að setja saman og tengja rökrásahlið fyrir ákveðna virkni, skrifa formúlu samsettrar rásar og prófa virkni hennar. Nemandinn öðlast þekkingu og skilning á hvernig hægt er að byggja upp rökrásavirkni í iðntölvum og forritanlegum rökrásum. Kynnist hugtökunum forrit (program), stigarit (ladder) og rim (network) og fær þjálfun í að setja upp einfalda stýringu í tölvunni og þjálfun í að tengja búnað við inn- og útganga.	
			Þekkingarviðmið
- helstu hugtökum stafrænnar tækni
 - grunnrökrásahliðum, OR, AND og NOT
 - rökrásahliðum NOR og NAND
 - hvernig hægt er að nota NOR og/eða NAND hlið til að fá fram grunnvirknina, OR, AND og NOT
 - mismunandi talnakerfum, einkum tvítölukerfi, oktan og hexadecimal
 - samrásum (IC-circuit) með rökrásahliðum (C-MOS eða TTL)
 - grunnskipunum í C og C++ forritun
 
Leikniviðmið
- lesa virkni einfaldra rökrása
 - hanna rökrás út frá skilyrtri virkni
 - bera saman mismunandi talnakerfi, einkum tvítölukerfi, oktan og hexadecimal við tugakerfið
 - tengja og prófa samrásir með rökrásahliðum
 - teikna stigarit eftir: a) formúlu, b) segulliðarás c) textalýsingu
 - skrifa formúlur í rökrásavirkni og vinna í hermisforritum
 - nota sannleikstöflur og bólskar jöfnur til að skilgreina virkni rökrása
 
Hæfnisviðmið
- útskýra grunnrökrásahlið og rökrásahlið með rofahliðstæðunni og setja upp sannleikatöflu þeirra og bólskar (Boolean) formúlur
 - setja upp einfaldar stýringar í iðntölvum og örgjörvarásum
 - tengja búnað við inn- og útganga iðntölvu
 - forrita örtölvukerfi sem stýra einföldum ferlum
 - forrita einfaldar örgjörvarásir