Fara í efni

MEFB4MS03(BA) - Efnisfræði og burðarþol

Efnisfræði og burðarþol

Einingafjöldi: 3
Þrep: 4
Nemendur þekki eðlis- og efnafræðieiginleika efna. Kynnist grunnþáttum eðlisfræði bygginga og einstökum vistfræðiþáttum, svo sem hita, raka og hljóðvist, grunnþáttum kraftafræðinnar, álagsstöðlum sem settir eru í byggingarreglugerð. Fjallað um áhrif náttúruafla á byggingar og byggingarefni og rætt um áhrif og afleiðingu loftmengunar.

Þekkingarviðmið

  • efnisfræði í faginu og hafa yfirlit yfir þá krafta sem verka á mannvirki.
  • helstu byggingarefnum sem notuð eru í dag og eiginleikum þeirra.
  • helstu kröftum sem verka á byggingar.
  • áhrifum náttúruafla á byggingar og byggingarefni.
  • vistfræðiþáttunum hita, raka og hljóðvist í byggingum.

Leikniviðmið

  • lesa úr einföldum kraftreikningum.
  • leita upplýsinga í byggingarreglugerð varðandi vistfræðiþætti.

Hæfnisviðmið

  • meta styrkleika byggingarhluta út frá þeim kröftum sem á bygginguna verka.
  • meta burðarþol byggingarvirkja til að geta leyst algeng og hefðbundin verkefni við notkun byggingarefna.
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?