Fara í efni

STÆF1JF05 - Stærðfræðigrunnur 3S

almenn brot, flatarmál, jöfnur, rúmmál, veldi

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Fara eftir inntökuskilyrðum skólans hverju sinni.
Í áfanganum er lagður grunnur að framhaldsskólastærðfræði á 2. þrepi með því að fara í undirstöður reikniaðgerða, almenn brot, jöfnur og veldi, hlutföll og prósentureikning, hnitakerfið og jöfnu beinnar línu, flatarmál og rúmmál. Nemandinn beitir þekkingu sinni við lausn flóknari dæma en áður. Lögð er áhersla á að nemandinn þjálfist í skipulögðum vinnubrögðum, nákvæmni í framsetningu við lausn verkefna og röksemdarfærslu.

Þekkingarviðmið

  • reikniaðgerðum
  • reglum um forgangsröðun aðgerða
  • reikningi með almennum brotum
  • einföldum veldareikningi
  • tvívíðu hnitakerfi
  • uppsettum og óuppsettum jöfnum
  • prósentu- og hlutfallareikningi
  • flatarmáls og rúmmáls reikningi

Leikniviðmið

  • beita undirstöðuatriðum talnareiknings, s.s. röð aðgerða
  • leysa fyrsta stigs jöfnur með einni óþekkri stærð og að einangra eina stærð úr jöfnu með mörgum óþekktum stærðum
  • teikna graf beinnar línu í hnitakerfi, finna hallatölu og skurðpunkta við ása hnitakerfisins og skurðpunkta tveggja lína
  • reikna hlutföll og prósentur s.s. við útreikning á virðisaukaskatti og samsettum prósentum
  • reikna flatarmál og rúmmál

Hæfnisviðmið

  • rökræða um stærðfræðileg viðfangsefni við aðra
  • setja úrlausnir sínar fram skriflega á skiljanlegan og snyrtilegan hátt
  • þýða margs konar verkefni á stærðfræðimál og setja þau upp sem stærðfræðilegt viðfangsefni
  • meta hvort svör eru raunhæf
  • skilja merkingu helstu stærðfræðitákna og hugtaka í námsefninu
  • vinna sjálfstætt með aðferðir í stærðfræði
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?