Fara í efni

VGRV1ML05 - Verktækni

litakóðar íhlutir, lóðningar, málmsmíði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Nemandinn lærir grunnatriði við smíði rafeindarása. Hann fær upplýsingar um efnisfræði íhluta rafeindatækninnar og virkni þeirra. Nemandinn lærir að beita helstu verkfærum eins og lóðbolta, tinsugu, bítara, járnsög, klippum, skrúfjárni og skiptilykli. Nemandinn smíðar einfaldar rafeindarásir og fær þjálfun í að beita verkfærum og gera mælingar á rásinni. Lögð er áhersla á að nemandinn styrkji hæfni sína til mælinga á spennu, viðnámi og straum í tengslum við rafmagnsfræði.

Þekkingarviðmið

  • virkni lóðbolta og mikilvægi hitastigs
  • efnisfræði íhluta
  • leiðni mismunandi efna
  • myndun tæringar og spennu milli efna
  • hvernig meðhöndla skal verkfæri
  • hvernig meðhöndla skal AVO mæla
  • helstu gerðum prentplatna
  • helstu atriðum varðandi öryggi

Leikniviðmið

  • stilla og hreinsa lóðbolta
  • lóða rafeindarás án kaldra lóðninga
  • nota tinsugu eða tinhreinsivír
  • bora með fjölhraða borvél
  • beygja og fella íhluti í prent svo vel fari
  • nota helstu málmsmíðatæki

Hæfnisviðmið

  • setja upp og lóða einfalda rafeindarás á prentplötu
  • lóða íhluti án kaldra lóðninga
  • lóða íhluti með hámarks leiðni
  • losa íhluti upp án þess að skemma þá
  • prófa rásina með AVO mæli
  • bilanagreina ef rásin virkar ekki
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?