Fara í efni

FORR1VE15 - Vefforritun

Vefforritun

Einingafjöldi: 15
Þrep: 1
Í áfanganum fá nemendur þjálfun í vefsíðugerð og mikilvæg undirstaða undir vefforritun. Áherslusvið áfangans eru meðal annars HTML ritun, CSS stílsíður, Javascript, SQL og PHP. Hver þessara þátta er tekinn sérstaklega fyrir og sýnt er hvernig samspil þeirra stuðlar að tjáningarríkri og vandaðri framsetningu vefsíðna sem á að tryggja nemendum góða undirstöðu í algengum verkefnum vefforritunar. Í þessum áfanga eru einnig grunnatriði vefforritunar kynnt með notkun þekktra forritunarmála og notkun gagnagrunna. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð í þessum áfanga.

Þekkingarviðmið

  • helstu hugtökum í HTML, CSS, JavaScript, PHP og gagnagrunnum.
  • forritun
  • muninum á server vs client side programming

Leikniviðmið

  • nota JavaScript til að búa til einfalda viðmótsvirkni
  • nota PHP til að gera einfaldar dýnamískar síður
  • nota helstu skipanir í SQL
  • nota helstu hjálpartól
  • nota HTML og CSS til að búa til vefsíðu
  • lesa HTML kóða í vefsíðu

Hæfnisviðmið

  • búið til HTML síðu á réttan hátt
  • viðmótsforrita
  • getið stílað vefsíður á einfaldan hátt með CSS
  • látið JavaScript keyra á vefsíðu
  • notað lágmarksfjölda skipana til að leysa verkefni
  • búa til einfaldar fyrirspurnir í gagnagrunn
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?