Fara í efni

ÍÞSN3ÍY03(AV) - Starfsnám í íþróttum 1

aðstoð við þjálfun yngri barna, æfingaáætlun, íþróttakennsla

Einingafjöldi: 3
Þrep: 3
Forkröfur: ÍÞRG2ÞS03 og ÍÞRF3BK05
Áfanganum er ætlað að kynna nemandanum þjálfun barna á aldrinum 6 – 9 ára. Nemandinn lærir að leiðbeina börnum og setja upp æfingaáætlun fyrir ákveðið tímabil og útbúa tímaseðla. Farið er yfir hlutverk íþróttaþjálfara sem fyrirmyndar barna og unglinga og hvernig skuli leiðbeina börnum og unglingum varðandi tækniatriði ýmissa íþróttagreina. Nemandinn nýtir sér upplýsingatækni við skipulag þjálfunar. Einnig er lögð áhersla á að nemandinn tileinki sér jákvæð og uppbyggileg samskipti við æfingahópa sína.

Þekkingarviðmið

  • kennslu og þjálfun barna á aldrinum 6-9 ára
  • helstu forsendum áætlanagerðar í íþróttum
  • hlutverki íþróttaþjálfara sem fyrirmynd barna og unglinga
  • helstu reglum þeirra greina sem kenndar eru

Leikniviðmið

  • leiðbeina börnum í grunnatriðum ýmissa greina
  • kynna nýja leiki og æfingar fyrir æfingahópa barna á aldrinum 6 – 9 ára
  • hafa jákvæð og örvandi samskipti við æfingahópa sína

Hæfnisviðmið

  • kenna börnum og unglingum ýmsa leiki og grunnæfingar í íþróttum
  • halda uppi góðum aga og virkni í sínum æfingahópi
  • nýta sér upplýsingatækni við skipulagningu þjálfunar sinna æfingahópa í samráði við íþróttakennara/þjálfara
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?