STAÞ3VS30 - Starfsþjálfun vélvirkja
starfsþjálfun í vélvirkjun
			Einingafjöldi: 30
Þrep: 3
								
	Þrep: 3
		Nám á vinnustað er skilgreindur hluti af námi í vélvirkjun. Starfsþjálfun er ætlað að þjálfa frekar hæfni nemenda á þeim sviðum sem nám þeirra á brautinni nær til. Á vinnustað fá þeir tækifæri til að takast á við raunveruleg verkefni við þær aðstæður sem fyrir hendi eru hverju sinni. Nemendur kynnast af eigin raun þeirri menningu sem fyrir hendi er í íslenskum fyrirtækjum og eru beinir þátttakendur í henni. Gert er ráð fyrir að hverjum nema fylgi ferilbók þar sem grein er gerð fyrir þjálfun hans. Þeir verkþættir sem nemandi framkvæmir eru tíundaðir, mat lagt á framgöngu hans, verktækni, vinnuhraða og hæfni í viðkomandi iðngrein. Bera nemandi og atvinnurekandi eða fulltrúi hans sameiginlega ábyrgð á skráningu í ferilbók (sjá nánar um ferilbækur á vef Iðunnar http://www.idan.is/namssamningar/ferilbok). 
Um nám og kennslu í áfanganum gilda ákvæði reglugerðar nr. 840/2011 um vinnustaðanám og starfsþjálfun á vinnustað.
	
			Um nám og kennslu í áfanganum gilda ákvæði reglugerðar nr. 840/2011 um vinnustaðanám og starfsþjálfun á vinnustað.
Þekkingarviðmið
- þeim efnum sem unnið er með í málmiðnaði
 - þeim tækjum sem notuð eru við vinnu í málm- og véltæknigreinum
 - meðferð spilliefna og úrgangs
 - framleiðsluferli algengra smíðamálma, smíðahæfni, merkingum og efnisstöðlum
 
Leikniviðmið
- meðhöndla málma, vélar og vélarhluta
 - nota helstu handverkfæri sem tengjast viðkomandi iðngrein
 - vinna við hand- og tölvustýrð tæki sem notuð eru á verkstæðum
 - sjóða málma og velja suðutækni og -aðferð við hæfi
 
Hæfnisviðmið
- lesa teikningar, málsetja, draga upp útflatninga, gera efnislista, meta efnisþörf og kostnað
 - vera ávallt meðvitaður um þær hættur sem fylgja störfum í málmiðnaði og þær öryggiskröfur sem gerðar eru á vinnusvæðum
 - skipuleggja verkferla, setja upp verkþáttaröð og verkáætlun og vinna samkvæmt henni
 - eiga í samskiptum við aðra iðnaðarmenn, hönnuði, tæknifólk og verkkaupa. Hann þekkir skipulag starfsþjálfunar og hlutverk hennar í námi sínu