Fara í efni

STÞM3MA25 - Starfsþjálfun 3

Starfsþjálfun MT

Einingafjöldi: 25
Þrep: 3
Forkröfur: STÞM2MA25
Starfsþjálfun matartæknanema á 3. þrepi eru 25 feiningar. Áfanginn er reynslutími nemans á viðurkenndum starfsnámsstað og stendur yfir í 12,5 vikur. Á tímabilinu öðlast nemandinn aukna þekkingu, leikni og hæfni í störfum matartækna undir leiðsögn fagaðila. Í áfanganum æfir nemandinn sig í matreiðslu og framreiðslu á almennu fæði og öllum helstu gerðum sérfæðis, allar máltíðir dagsins, bæði heitar og kaldar. Kennari, leiðbeinandi og yfirmaður bera sameiginlega ábyrgð á starfsþjálfuninni. Nemandi skal alfarið fylgja þeim reglum sem viðkomandi starfsnámsstaður setur sínu starfsfólki.

Þekkingarviðmið

  • vinnuskipulagi eigin vinnu og annarra í litlu eldhúsi (1-2 starfsmaður/-menn), deildarskiptu eldhúsi eða stærra eldhúsi
  • mikilvægi náinnar samvinnu, hjálpsemi og sameiginlegrar ábyrgðar
  • verklýsingum fyrir störf í eldhúsinu
  • undirbúningi og grunnmatreiðslu og að vinna eftir skipulagi vinnustaðar
  • að undirbúa og matreiða almennt fæði og helstu gerðir sérfæðis
  • að taka þátt í og skipuleggja skömmtun á mat og fara eftir skammtstærðum staðarins
  • að setja upp innra eftirliti fyrir vinnustað
  • að taka þátt í og undirbúa almenna matseðlagerð , fæði með breyttri áferð og sérfæði viðkomandi staðar
  • að fara eftir mikilvægum ferlum við útsendan mat og gæðastaðla um innra eftirlit, HACCP
  • að vinna að gæða- og úrbótarverkefnum

Leikniviðmið

  • undirbúa vinnuskipulag og verklýsingar
  • setja upp nákvæmar innihaldslýsingar fyrir rétti og matseðla skv. lögum um merkingar matvæla er snýr að helstu ofnæmisvöldum í fæðu
  • matreiða allt almennt fæði
  • matreiða sérfæði vinnustaðarins
  • skammta mat eftir skömmtunarformi vinnustaðar
  • vinna að úrbóta og gæðaverkefnum

Hæfnisviðmið

  • bera ábyrgð á verkferlum og skipulagi við gerð almenns- og sérfæðis á heilbrigðisstofnun, í leik- og grunnskóla, þróunareldhúsi í matvælaframleiðslu sem og í eldhúsi þar sem framleiddar eru máltíðir til sölu í mötuneytum, skólum og flugvélum.
  • vinna eftir ferlum við útsendan mat og gæðastöðlum um innra eftirlit, HACCP
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?