TSVÉ2VN03 - Tölvustýrðar iðnvélar
notkun, umgengi, virkni, öryggisatriði
			Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Forkröfur: IÐNT2AC05
	Þrep: 2
Forkröfur: IÐNT2AC05
		Nemendur öðlast grunnþekkingu á virkni og notkun tölvustýrðra iðnaðarvéla. Þeir kynnast öllum öryggisatriðum í umgengni við slíkar vélar. Nemendur geta smíðað grip samkvæmt teikningu í tölvustýrðri iðnaðarvél (rennibekk, fræsivél, skurðarvél, suðuþjark eða beygjuvél). Nemendur fá innsýn í helstu forrit sem notuð eru og leysa einföld verkefni.	
			Þekkingarviðmið
- helstu gerðum tölvustýrðra málmvinnsluvéla
 - helstu forritum sem slíkar vélar byggja virkni sína á
 
Leikniviðmið
- beita tölvustýrðum vélum við smíði hluta úr málmi
 
Hæfnisviðmið
- nýta sér þá möguleika sem tölvustýrðar vélar bjóða upp á við lausn viðfangsefna sem starfið snýst um að leysa