LYFJ2LS05(AV) - Lyfjafræði á sjúkraliðabraut
lyf, sjúkrastofnanir
			Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: SJÚK2GH05
	Þrep: 2
Forkröfur: SJÚK2GH05
		Í áfanganum er farið í lyfjaskrár, ATC-flokkunarkerfi lyfja, geymslu og fyrningu lyfja, lyfjaform og ýmsar skilgreiningar sem tengjast lyfjum. Farið er í helstu lyf sem notuð eru við hjarta- og æðasjúkdómum, geðsjúkdómum, öndunarfærasjúkdómum, húðsjúkdómum, sykursýki, verkjum og svefnvandamálum. Eins er minnst á sýklalyf, meltingarfæralyf og lyf við Alzheimer sjúkdómi. Fjallað er um lyf og lyfjaflokka, verkun lyfja, aukaverkanir, milliverkanir og helmingunartíma lyfja. Farið er almennt í lyfjaskrár og notkun á þeim.	
			Þekkingarviðmið
- uppbyggingu sérlyfjaskrár
 - ATC-flokkunarkerfi lyfja
 - ýmsum algengum skilgreiningum sem tengjast lyfjum
 - hugtökum sem notuð eru varðandi frásog, dreifingu, umbrot og útskilnað lyfja
 - helstu lyfjaformum, kostum þeirra og göllum
 - áhrifum hjarta- og æðasjúkdómslyfja, geðlyfja, öndunarfæralyfja, húðlyfja, sykursýkislyfja, verkjalyfja og svefnlyfja
 - helstu flokkum lyfja við Alzheimer sjúkdómi og áhrifum sýkla- og meltingarfæralyfja
 - helstu auka- og milliverkunum ofangreindra lyfja
 - blóðþéttnikúrfum
 
Leikniviðmið
- leita að upplýsingum um lyf á netinu
 - flokka sérlyf eftir ATC-flokkunarkerfinu
 - reikna út helmingunartíma lyfja
 - aðstoða skjólstæðinga við notkun á ýmsum lyfjaformum, þar sem við á
 
Hæfnisviðmið
- miðla algengum upplýsingum um ofangreind lyf til skjólstæðinga þar sem við á
 - átta sig á tengslum aukaverkana lyfja við verkun þeirra
 - sýna skilning á verkun ofangreindra lyfja með tilliti til verkunarmáta þeirra