Fara í efni

BRAF3RH05(AV) - Hleðslukerfi og rafhreyflar

hleðslukerfi, rafmagn

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: BRAF3RS05
Farið yfir ýmsar gerðir rafala, íhluti þeirra og spennustillingu, viðhald og viðgerðir. Yfirlit yfir hlutverk íhluta, prófanir þeirra og hleðslukerfa í heild þ.m.t. rafgeyma, bæði hefðbundna blýsýrurafgeyma og aðrar gerðir rafgeyma svo sem Nikel-metal, hydrid og Li-ion gerðir rafgeyma sem notaðar eru í nýorkubifreiðum. Farið yfir ýmsar gerðir rafhreyfla sem notaðir eru í rafbifreiðum. Farið yfir uppbyggingu rafhreyfla. Farið yfir gerð og uppsetningu stýrikerfa fyrir rafbifreiðar. Yfirlit yfir hlutverk íhluta og prófanir þeirra. Nemendur vinna við mat og prófun, helstu hluta rafbúnaðar. Skoðuð ýmis atriði sem tengjast orkunýtni og áhersla lögð á útreikninga og stærðagildi í rafbifreiðum við ýmsar aðstæður. Farið er yfir áhrif mengunar með hliðsjón af gróðurhúsaáhrifum. Áhersla á meðferð mæli- og prófunartækja og hættur samfara umgengni um rafbúnað.

Þekkingarviðmið

  • ýmsum gerðum rafala, íhlutum þeirra og spennustillum
  • ýmsum gerðum rafgeyma þ.m.t. í rafbifreiðum
  • hættum í umgengni um háspennurafbúnað ökutækja
  • reglum um meðferð og notkun mæli- og prófunartækja
  • reglum um vinnu við háspennukerfi í ökutækjum
  • ýmsum gerðum rafhreyfla og rafhreyfibúnaðar í ökutækjum
  • heildarvirkni rafbúnaðar rafbifreiða
  • hættum við vinnu við rafbifreiðar

Leikniviðmið

  • mæla straumframleiðslu og hleðsluspennu
  • prófa hleðslukerfi í ökutækjum
  • taka rafala úr ökutæki, prófa, gera við og setja aftur í ökutækið
  • prófa og hirða um rafgeyma
  • mæla straumnotkun og spennufall rafkerfis rafbifreiða
  • taka rafgeymi úr bifreið með háspennubúnað
  • prófa rafhreyfla rafbifreiða

Hæfnisviðmið

  • lýsa uppbyggingu hleðslukerfa í rafknúnum ökutækjum
  • lýsa virkni stýringar rafbúnaðar rafbifreiða
  • lýsa virkni og gerð helstu rafhreyfla í ökutækjum
  • lýsa aðferðum við að aftengja háspennubúnað frá lágspennubúnaði í rafbifreiðum
  • lýsa ýmsum stjórnbúnaði rafhreyfla og rafgeyma
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?