Fara í efni  

VIN105A - Vinnustaðanám á öldrunardeild

Undanfari: HJV103, HJÚ103, LÍB101 og NÁT123

Áfangalýsing:

Verknám fer fram á öldrunar- og/eða hjúkrunardeildum. Námstíminn er 15 átta klukkustunda vaktir á önn. Hjúkrunarkennari, leiðbeinandi og deildarstjóri bera sameiginlega ábyrgð á verklegu námi sjúkraliðanema. Nemandi fylgir leiðbeinanda við öll almenn störf sjúkraliða. Í upphafi tímabils setur nemandi sér 5 persónuleg og fagleg markmið um verknámið. Á meðan á verknámi stendur skal nemandi fylla út gátlista um unna verkþætti og að verknámstímanum loknum skrifar hann ritgerð, þar sem hann fjallar á faglegan hátt um atburð sem hann var þátttakandi í á meðan á námsdvölinni stóð.

Til baka

Getum við bætt efni síðunnar?

VERKMENNTASKÓLINN Á AKUREYRI

Skrifstofa VMA er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 08:15-12:10 og frá 12:30-15:00. Á föstudögum er opið frá kl 08:15-13:00.