Fara í efni  

UTN1024 - Upplýsingatækni

Áfangalýsing:

Í áfanganum fá nemendur að kynnast ýmsum hliðum upplýsingatækninnar. Í fyrstu lotu er farið í grunnatriði í tölvumálum og reglur sem gilda í tölvusamskiptum og umgengni við tölvukerfi skólans. Þá er rifjuð upp notkun á Innu og Moodle. Í næstu lotum vinna nemendur verkefni í Calc töflureikni, í framsetningaforritinu Impress og ritvinnsluforritinu Writer en einnig fá nemendur að kynnast ljósmyndavinnslu í forritinu Gimp. Hættur vefsins verða ræddar og nokkur algeng verkfæri internetsins verða kynnt. Áhersla er lögð á öguð vinnubrögð og skipulag við uppsetningu verkefna.

Til baka

Getum við bætt efni síðunnar?

VERKMENNTASKÓLINN Á AKUREYRI

Skrifstofa VMA er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 08:15-12:10 og frá 12:30-15:00. Á föstudögum er opið frá kl 08:15-13:00.