SAG3036 - Menningarsaga
Áfangalýsing:
Í þessum áfanga eru valin tímabil og svið í menningarsögu Evrópu tekin til skoðunar í ljósi ýmissa þátta, t.d. myndlistar, byggingarsögu, bókmennta, heimspeki, hugarfars og félagsgerðar samfélaga. Nemendur kynna sér frumtexta, skoða samtímamyndefni og tónlist ásamt því að tileinka sér fræðilega og skáldlega umfjöllun um efnið. Teknir verða fyrir valdir efnisþættir, t.d. grísk klassík, rómversk menning, heimur miðalda, kristin menning, íslömsk menning, endurreisnin á Ítalíu, barokköldin, stefnur og straumar í list og menningu á 19. öld og tíðarandi. Tækni og tækninýjungar, áhrif þess á samfélög og lífskjör manna. Einnig verða nemendur þjálfaðir í heimildarýni af ýmsu tagi. Námsmat byggist á skriflegum prófum og verkefnum.