Fara í efni  

LKN2924 - Lífsleikni

Áfangalýsing:

Í þessum áfanga sem fylgir í kjölfar lífsleikni 192 halda nemendur áfram að búa sig undir þátttöku í samfélaginu með því að efla enn fremur félagslega færni sína og siðferðiskennd. Lögð verður áhersla á að efla samskiptagreind og jákvæða lífssýn nemenda og gera þeim kleift að takast á við kröfur og ögranir daglegs lífs. Umsjónarkennari sér áfram um kennslu áfangans og er þannig í beinum tengslum við umsjónarhóp sinn og mun vera nemendum innan handar við að fylgjast með mætingu og framvindu náms um leið og lögð er áhersla á skipulag á námi skólans, skólareglur, ábyrgð nemenda á eigin námi, hegðun sinni og ástundun náms. Fjallað verður um sjálfsmynd og hvað það er sem hefur áhrif á hana t.d. námsörðuleikar, útlit, neysluvenjur, áhugasvið, sterka hæfileika nemenda og þá hæfileika sem vert er að styrkja. Einnig verður fjallað um áhrif einstaklings á samfélagið t.d. Fjölmiðla, neyslumunstur, fjármál, akstur, atvinnu og framhaldsnám.

Til baka

Getum við bætt efni síðunnar?

VERKMENNTASKÓLINN Á AKUREYRI

Skrifstofa VMA er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 08:15-12:10 og frá 12:30-15:00. Á föstudögum er opið frá kl 08:15-13:00.