LKN1S24 - Lífsleikni hjá starfsbraut
Áfangalýsing:
Í áfanganum er leitast við að styrkja nemandann sem einstakling, námsmann og að styrkja virkni hans í hópnum. Lögð er áhersla á styrkja samkennd nemenda, efla tjáningarhæfni, sjálfstraust og öryggiskennd þeirra í og utan skóla. Unnið er með skólareglur, umgengni, námsvenjur og annað sem snýr að veru nemandans í VMA. Fjallað um mikilvægi þess að taka ábyrgð á náminu, hegðun, mætingum, neyslumynstri, fjármálum og almennri samfélagsþátttöku.