HSL1936 - Heilsa, sjálfsmynd og lífsstíll
Áfangalýsing:
Áfanginn byggist á sex stoðum menntunar eins og þær koma fram í Aðalnámskrá framhaldsskóla þ.e. læsi í víðum skilningi, menntun til sjálfbærni, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti og skapandi starf. Nemendur afla sér þekkingar tengt sjálfinu, nærumhverfinu og samfélaginu í heild. Vinna með eigin styrkleikar og famtíðarmöguleika. Fjallað verður um val nemanda varðandi lífsstíl s.s. Mataræði og hreyfingu, áhugamál, menntun og starfsvettvang. Fjallað verður um siðfræðileg álitamál og þátttöku í lýðræðislegu samfélagi, samfélagsréttindi og skyldur, virðingu, manngildi og gagnrýna hugsun.