FTK1012 - Fagteikning rafeindavirkja
Áfangalýsing:
Í þessum áfanga er lögð áhersla á að nemendur nái tökum á einföldum teikniforritum, sem notuð eru við fagteikningar, svo sem Smart Draw eða PC Schematics. Enn fremur að þeir læri viðteknar aðferðir við uppsetningu rafeindateikninga með skýringum, stöðluðum táknum og greiningu á teikningunni. Í upphafi áfanga eru teiknaðar einfaldar rafeindarásir og skýrt hvaða tákn tilheyra hvaða staðli þar sem einkum er lögð áhersla á tákn samkvæmt viðurkenndum íslenskum stöðlum. Gert er ráð fyrir að verkefni verði stærri og flóknari eftir því sem líður á áfangann og í lok hans teikni nemendur hágæða lampamagnara fyrir einóma hljóð.