DAG196C -
Áfangalýsing:
Áfanginn er samþættur, með það að markmiði að auka skilning og færni nemenda í læsi á umhverfi sitt, félagsmótun, ensku og stærðfræði miðað við þær aðstæður sem myndast geta í daglegu lífi. Stuðst er við sex meginstoðir menntunar eins og þær koma fram í nýrri Aðalnámskrá framhaldsskóla - Læsi í víðum skilningi, menntun til sjálfbærni, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti og skapandi starf. Nemendur læra að nýta upplýsingatækni í námi sínu, þjálfast í að vinna með öðrum, þurfa að sýna frumkvæði og læra að bera ábyrgð á eigin námi. Áfanginn byggist að mestu leyti á verkefnavinnu, einstaklings-, para- og hópverkefni, þar sem áhersla er lögð á þjálfun í lestri, beitingu tungumála í ræðu og riti sem og stærðfræði daglegs lífs. Lögð er áhersla á framkomu, tjáningu og virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum ásamt leikni í daglegum samskiptum.