BRA5024 - Rafmagn í bíliðngreinum - hleðslukerfi
Undanfari: BRA301,RAT112,BRR202
Áfangalýsing:
Farið yfir ýmsar gerðir rafala, íhluti þeirra og spennustillingu, viðhald og viðgerðir. Yfirlit yfir hlutverk íhluta, prófanir þeirra og hleðslukerfa í heild þ.m.t. rafgeyma. Nemendur smíða einfaldan spennustilli og prófa virkni hans. Áhersla á meðferð mæli- og prófunartækja.