Fara í efni  

Meistaraskóli

Iðnmeistaranám er í boði í fjarnámi fyrir þá sem lokið hafa sveinsprófi í iðngrein.

Afrit eða staðfesting á sveinsbréfi þarf að fylgja umsókn.

Námskrár með áfangalýsingum er að finna hér fyrir neðan.

Almennt meistaranám Málmiðngreinar
Rafiðngreinar   Byggingagreinar  húsasmíði, múrsmíði, pípulagnir

 

Eftirfarandi áfangar eru í boði í fjarnámi VMA:

MEIS4BS05 Bókhald og skjalavarsla MEIS4FJ04 Fjármál MEIS4GS02 Gæðastjórnun
MEIS4KL06 Kennsla og leiðsögn MEIS4RE05 Rekstrarfræði MEIS4ST06 Stjórnun
MEIS4SF05 Stofnun fyrirtækja MEIS4SÖ03 Sölufræði MEIS4ÖU02 Öryggi og umhverfi

 

Faggreinar byggingamanna (ekki kenndir á hverri önn)
MMÆL4MS03  Mælingar, verður kennt sem námskeið á Akureyri
MLÖR4MS02  Lögfræði
MEFB4MS03  Burðarþol og efnisfræði

 

 

 

Nemendum sem taka námið með fullri vinnu er ráðlagt að skipta náminu í þrennt eða fernt. Á þremur önnum er passlegt að taka um 13 einingar/ 3 áfanga á önn en fjórskipt 2-3 áfanga á önn. Sérgreinar byggingamanna eru að jafnaði í boði á vorönn annað hvert ár en viðbót í raf- og málmgreinum sækja nemendur í aðra skóla eða annað námsfyrirkomulag. Þær greinar sem eru sameiginlegar öllu meistaranámi eru í boði á öllum önnum en sú staða gæti komið upp að hópar fyllist og nemendum er þá boðið pláss í öðrum áfanga eftir atvikum.

Vegna mikillar aðsóknar geta nemendur ekki vænst þess að fá fleiri en 3 áfanga á önn.

 Hér er dæmi um hvernig hægt er að raða saman áföngum með svipuðu álagi í 3 annir. Athugið að það skiptir ekki máli í hvaða röð þessir pakkar eru teknir.

1 2 3
MEIS4BS05 MEIS4KL06 MEIS4SF05
MEIS4FJ04 MEIS4RE05 MEIS4ST06
MEIS4SÖ03 MEIS4GS02 MEIS4ÖU02

 

Meistaranám við VMA er í boði fyrir allar starfsgreinar en neðantaldar greinar hafa sérgreinar sem hér segir:

- Byggingagreinar: Til viðbótar þarf 3 áfanga, 2 eru kenndir í fjarnámi og einn í staðlotu. Hafið samband við sviðsstjóra vegna þessara áfanga.

- Málmiðngreinar: Til viðbótar þarf 8 einingar í fagtengdum greinum, t.d. vélstjórnargreinar umfram vélvirkjanámið.

- Rafiðngreinar: Til viðbótar þarf 30 einingar í faggreinum hjá RAFMENNT.

Mat á námi til meistararéttinda

Umsóknarvefur

Dagatal fjarnáms

 

Getum við bætt efni síðunnar?

VERKMENNTASKÓLINN Á AKUREYRI

Skrifstofa VMA er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 08:15-12:10 og frá 12:30-15:00. Á föstudögum er opið frá kl 08:15-13:00.