Verkmenntaskólinn starfar eftir áfangakerfi. Það þýðir að hverri námsgrein er skipt í áfanga sem hver um sig er
kenndur á einni önn og lýkur með prófi eða öðru námsmati.
Kostir þess að vera í áfangaskóla eru m.a.
-
Sveigjanleiki. Nemendur hafa talsvert frelsi hvað varðar samsetningu náms síns og námshraðaog þeir geta auðveldlega skipt um braut.
-
Námsframboð. Mikill fjöldi námsbrauta og námsáfanga. Nemendur hafa úr miklu að velja.
-
Ábyrgð. Nemendur bera ábyrgð á skipulagi náms síns og raða því sjálfir saman frá önn til annar þar til þeir hafa lokið námi á þeirri braut sem þeir hafa valið sér.
Skólinn aðstoðar nemendur við þetta verkefni og sér til þess að þeir hafi nauðsynlegar upplýsingar við höndina.
Nemandinn er þannig virkur þátttakandi í að skipuleggja nám sitt og ber sjálfur ábyrgð á því að öllum áföngum sé lokið á tilsettum tíma.
Uppfært 07. september 2018 (SHM)