Fara í efni

Aðstaða

Mest öll kennsla í Verkmenntaskólanum á Akureyri fer fram í aðalbyggingu skólans við Hringteig 2, á Eyrarlandsholti. Byggingin hýsir flestar kennslustofur, íþróttaaðstöðu, stoðþjónustu, samkomustað fyrir nemendur (Gryfjan) og aðstöðu fyrir nemendafélag. Þar er einnig að finna bókasafn með lesrými og mötuneyti með veitingasölu í Gryfju. Hluti íþróttakennslu fer fram í íþróttahöllinni á Akureyri og sundkennsla í Sundlaug Akureyrar.

  • Öll kennslurými í Verkmenntaskólanum á Akureyri eru merkt með bókstöfum (A, B, C o.s.frv.).
  • Almennum kennslustofum er skipt niður í þrjár kennsluálmur (B, C og D) þar sem kennd eru almenn bókleg fög ásamt verklegum greinum. Stakar almennar kennslustofur er einnig staðsettar í E, G, H, I og M.
  • Verklegum greinum eins og byggingargreinum (E), matvælanámi (G), listnámi (G), málmiðn (H), rafiðn (F) og vélstjórn (I) er síðan skipt niður á viðeigandi verkstæði og kennslurými.
  • Íþróttaaðstaða skólans er staðsett í kjallara skólans (M). 
  • Bókasafn skólans er staðsett miðsvæðis í skólabyggingunni.
  • Skrifstofur skólameistara, aðstoðarskólameistara, áfangastjóra, kennslustjóra ásamt aðstöðu kennara eru í A - álmu. 

 

Uppfært 31. október 2023.
Getum við bætt efni síðunnar?